2. febrúar 2022
Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri 17. febrúar


Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri verður haldinn í Kaupangi fimmtudaginn 17. febrúar nk. kl. 20.00.
Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Seturétt á fundinum hafa þeir sem hafa verið til þess kjörnir á aðalfundum sjálfstæðisfélaganna á Akureyri.
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningsskil
3. Kjör stjórnar
4. Kjör tveggja skoðunarmanna reikninga
5. Kjör fulltrúa í kjördæmisráð
6. Lagabreytingar (engin tillaga á dagskrá)
7. Önnur mál
Framboð skal tilkynna til formanns fulltrúaráðsins, Ásgeirs Arnar Blöndal.