20. ágúst 2020

Aðalfundi kjördæmisráðs frestað - fjarfundur í september

Tekin hefur verið sú ákvörðun að fresta aðalfundi kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi sem fara átti fram þann 12. september næstkomandi um óákveðinn tíma. Ákvörðunin var tekin í ljósi óvissunnar sem ríkir varðandi Covid-19 og fjöldatakmörkunum því tengdu.

Þrátt fyrir að aðalfundi hafi verið frestað er ætlunin að halda fund í kjördæmisráðinu í byrjun september þar sem notast verður við fjarfundarbúnað. Þar mun okkur gefast tækifæri til að ræða saman um nýjar áskoranir, Alþingiskosningarnar 2021 og núverandi stjórnmálaviðhorf og landslag.

Nánari dagskrá og auglýsing fyrir fjarfund kjördæmisráðs verður send út síðar.

Að lokum minnum við á mikilvægi þess að aðildarfélögin skili inn aðalfundarskýrslum til Valhallar. Hægt er að senda þær á netfangið lilja@xd.is. Aðalfundarskýrslur þurfa að hafa borist skrifstofu flokksins til þess að félag eigi rétt á að senda fulltrúa á landsfund.