15. maí 2022

Að loknum kosningum

Þá er þessari lærdómsríku og skemmtilegu kosningabaráttu lokið. Á bakvið Sjálfstæðisflokkinn á Akureyri er ótrúlega flottur hópur af frábæru fólki sem lagði á sig gríðarlega mikla vinnu fyrir okkur Sjálfstæðismenn, fyrir það erum við þakklát.

Við viljum þakka öllum þeim sem sýndu okkur stuðning, takk fyrir traustið. Nú tekur við vinnan sem við buðum okkur fram til að gegna fyrir sveitarfélagið okkar. Krefjandi en spennandi verkefni framundan sem við í D-listanum viljum vinna af heiðarleika og í samvinnu við alla bæjarfulltrúa, starfsmenn og íbúa.

 

Fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Heimir Örn Árnason og Lára Halldóra Eiríksdóttir