Að loknum aðalfundi Varðar


Aðalfundur Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, var haldinn í Kaupangi í kvöld. Kristján Blær Sigurðsson var kjörinn formaður Varðar í stað Axels Darra Þórhallssonar sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Kristján Blær hefur setið í stjórn Varðar frá árinu 2018.
Auk Kristjáns Blæs voru kjörin í aðalstjórn: Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Einar Hannesson, Embla K. Blöndal, Máney Nótt Ingibjargardóttir, Vala Rún Sigurpálsdóttir og Viktor Emil Sigtryggsson. Í varastjórn voru kjörin: Axel Darri Þórhallsson, Hjörvar Blær Guðmundsson og Valgeir Andri Ríkharðsson.
Nýkjörinni stjórn Varðar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.