2. janúar 2026
Bæjarþing Sjálfstæðisflokksins á Akureyri 10. janúar

Bæjarþing Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldið laugardaginn 10. janúar á Múlabergi á Hótel KEA. Á Bæjarþinginu verða lagðar línurnar fyrir bæjarstjórnarkosningar 16. maí nk.
Þingið er opið öllum skráðum meðlimum í Sjálfstæðisflokknum á Akureyri.
Dagskrá
Kl. 9:30 Innskráning og fundargögn afhent
Kl. 10:00 Málefnavinna
Kl. 12:00 Hádegishlé á Múlaberg
Kl. 13:00 Málefnavinna
Kl. 16:00 Samhristingur
Allt Sjálfstæðisfólk á Akureyri hvatt til að mæta og hafa áhrif!

