12. apríl 2026

Ályktun aðalfundar kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi

Á aðalfundi kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi sem haldinn var á Akureyri laugardaginn 11. apríl var samþykkt eftirfarandi ályktun:


Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fagnar framlagningu efnahagstillagna flokksins sem miða að auknum stöðugleika, ábyrgri fjármálastjórn og bættum lífskjörum. Tillögurnar leggja skýra áherslu á traustan rekstur, lækkun skulda og skilyrði til verðmætasköpunar um land allt. Þetta er raunhæf og ábyrg leið til að styrkja íslenskt efnahagslíf til framtíðar. 

Kjördæmisráð fagnar sölu ríkiseigna en leggur áherslu á að fluggáttir, án fríhafna, til og frá landinu skuli áfram vera í ríkiseigu með skýrri eigendastefnu enda um mikilvæga innviði að ræða. Mikilvægt er að þar sé rekstrargrundvöllur og öryggi flugvallarkerfisins um land allt verði tryggt.

Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur fjölskyldunnar, kjördæmisráð leggur áherslu á að full samsköttun hjóna verði tekin upp að nýju ásamt skattafrádrætti vegna íþyngjandi ferðakostnaðar fjölskyldna vegna tómstunda – og íþróttaiðkunar barna. 
 
Kjördæmisráð harmar aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar þar sem þrálátri verðbólgu, vaxandi atvinnuleysi og háum vöxtum er mætt með skattahækkunum sem kynda enn frekar undir verðbólgu. Í stað þess að grípa til raunverulegra aðgerða, eins og Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt fram, til að ná tökum á stöðunni virðist ríkisstjórnin vera ráðþrota gagnvart þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir í efnahagsmálum.

Nýkynntar skammtímaaðgerðir ríkisstjórnarinnar sýna að efnahagsstefna vinstri stjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hefur siglt í strand. Á sama tíma og heimili og fyrirtæki glíma við hækkandi verðlag og vaxtabyrði heldur hið opinbera áfram að þenjast út, sem eykur þrýsting á verðbólgu og óstöðugleika. Þessi þróun setur kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í verulega hættu og grefur undan þeirri viðleitni sem náðst hefur til að skapa stöðugleika.

Kjördæmisráð hafnar auknum opinberum gjöldum á ferðaþjónustuna. Jákvæðri uppbyggingu baðlóna og ferðaþjónustu er ógnað með boðuðum hækkunum á virðisaukaskatti. Brýnt er að standa vörð um uppbyggingu ferðþjónustunnar og fjárfestinga atvinnulífsins með hvetjandi en ekki letjandi aðgerðum. 
 
Kjördæmisráð leggur áherslu á að standa vörð um efnahagslegt sjálfstæði landsins og hafnar aðild Íslands að Evrópusambandinu.