Aðalfundur kjördæmisráðs - Þórhallur endurkjörinn formaður

Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi var haldinn á Múlabergi á Akureyri laugardaginn 11. apríl.
Þórhallur Harðarson var endurkjörinn formaður kjördæmisráðs. Hann hefur gegnt formennsku frá árinu 2022.
Í aðalstjórn voru einnig kjörin: Almar Marinósson, Arna Rut Gunnarsdóttir, Benedikt Snær Magnússon, Dagný Reykjalín, Dýrunn Pála Skaftadóttir, Guðgeir Fannar Margeirsson, Guðný Margrét Hjaltadóttir, Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir, Jósavin Heiðmann Arason, Karl Indriðason, Oddný Björk Daníelsdóttir, Stefán Friðrik Stefánsson og Þórunn Sif Harðardóttir.
Í varastjórn voru kjörin: Jóhann Gunnar Kristjánsson, María H. Marinósdóttir, Hjalti Gunnarsson, Þórarinn Jakob Þórisson, Sunna Dögg Markvad Guðjónsdóttir, Hildur Brynjarsdóttir og Anna Rósa Magnúsdóttir.
Anton Berg Sævarsson var kjörinn formaður KUSNA - Kjördæmissamtaka ungra sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi á aðalfundi KUSNA sem fram fór á undan aðalfundi kjördæmisráðs. Formaður KUSNA á sjálfkrafa sæti í aðalstjórn kjördæmisráðs og varaformaður KUSNA er varamaður hans í stjórninni. Einar Freyr Guðmundsson var kjörinn varaformaður KUSNA.
Á fundinum var samþykkt ályktun sem lesa má hér, og lagabreyting í 3. grein laga kjördæmisráðs, þess efnis að formenn sjálfstæðisfélaga í Norðausturkjördæmi séu sjálfkjörnir í kjördæmisráðið.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson var kjörinn í miðstjórn af hálfu kjördæmisráðsins og varamaður hans var kjörinn Almar Marinósson.
Þingmenn flokksins í kjördæminu, Jens Garðar Helgason varaformaður Sjálfstæðisflokksins, og Njáll Trausti Friðbertsson, ávörpuðu fundinn og fóru vel yfir stöðuna í stjórnmálunum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í kjördæminu og á vettvangi landsmála.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, stýrði fundi. Ragnar Sigurðsson, formaður sveitarstjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins, og oddviti flokksins í Fjarðabyggð fór yfir sveitarstjórnarmálin og kosningarnar framundan og leiddi hópavinnu á fundinum. Tryggvi Másson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, ræddi innra starfið og skipulag flokksins að loknum flokksráðsfundi í mars og það sem er á döfinni.
Um kvöldið var fordrykkur á kosningaskrifstofunni í Furuvöllum 5 og kvöldverðarhóf á Múlabergi - þar var góð stemmning, mikið hlegið og skemmt sér vel með pubquiz og skemmtiatriðum.

