4. júlí 2025

Það þarf kjark til að standa með sannfæringu sinni

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, skrifar um umræðu í þinginu vegna hækkunar veiðigjalda. Þar standi Sjálfstæðisflokkurinn staðfastur vegna sannfæringar um að rétt sé að berjast fyrir byggðunum í landinu þar sem fólk hafi byggt sér líf og framtíð sem sé í hættu vegna aukinnar skattheimtu.

Sjálfstæðisflokkurinn stendur staðfastur í veiðigjaldamálinu vegna einskis annars en okkar sannfæringar.

Ég er ekki í pólitík til að segja fólki bara það sem það vill heyra. Ég er ekki í pólitík til að bogna undan árásum andstæðinga okkar. Ég er í pólitík til að standa vörð um grundvallaratriði. Ég er hér til að standa með því sem er rétt. Með fólkinu sem byggir þetta land upp með vinnu sinni. 

Það er stundum látið í veðri vaka að við séum að verja fámennan hóp. En það er einfaldlega rangt. Við stöndum með fólkinu sem mætir til vinnu á hverjum degi. Með þeim sem halda atvinnulífinu gangandi. Með byggðunum um allt land þar sem fólk hefur byggt sér líf og framtíð.

Við höfum boðið málamiðlanir. Vegna þess að við trúum á samtal og lausnir sem byggja á fagmennsku og traustum forsendum.
Ríkisstjórnin hefur kosið að hlusta ekki á varnaðarorð þeirra sem þekkja málið best. Ábyrgðin á stöðunni sem nú er uppi liggur ekki hjá okkur. Hún liggur hjá þeim sem kjósa að loka eyrunum.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei elt vinsældir. Við látum ekki stjórnast af popúlískum vindum. Við höfum þá bjargföstu trú að öflugt atvinnulíf sé grunnstoð þeirrar velferðar sem við höfum byggt upp á Íslandi. Og það er skylda okkar að standa vörð um það. 

Sagan mun sýna hverjir raunverulega stóðu með almenningi í þessu landi. Hverjir það voru sem stóðu vörð um störf, fjölbreytt atvinnulíf, nýsköpun og verðmætasköpun. Þar mun Sjálfstæðisflokkurinn standa réttu megin við línuna.


Guðrún Hafsteinsdóttir
formaður Sjálfstæðisflokksins