20. ágúst 2025

Vaxtalækkunarferlið stöðvað - hvar er sleggjan?

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, skrifar um ákvörðun Seðlabankans um að stöðva vaxtalækkunarferlið sem hófst fyrir tæpu ári. Vísbendingar eru um að nú hægi mjög á hagkerfinu, enda hafi ríkisstjórnin hækkað útgjöld og skatta, aukið óvissuna til muna.

Seðlabankinn stöðvaði í dag vaxtalækkunarferlið sem hófst í október 2024. Í aðdraganda kosninga hét forsætisráðherra því að hún myndi negla vextina niður með sleggju. Nú er staðan sú að sleggjunni hefur ekki verið lyft og slagkraftur hennar er enginn. Verðbólga er enn mikil, húsnæði dýrt og vextir háir.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla tíð talað fyrir festu í ríkisfjármálum, aðhaldi í opinberum rekstri og minni álögum á heimili og fyrirtæki. Það er leiðin að lægri vöxtum. En ríkisstjórnin hefur farið þveröfuga leið; aukið útgjöld, hækkað skatta og aukið óvissu.

Á sama tíma og Seðlabankinn sendir skýr skilaboð um að vextir haldist háir á meðan verðbólgan þokast ekki frekar í átt að markmiði boðar ríkisstjórnin hverja útgjaldaaukninguna á fætur annarri.

Í ofanálag benda vísbendingar til þess að nú hægi á húsnæðisuppbyggingu. Verktakar haldi að sér höndum, fjárfestar hiki og framtíðaráformum slegið á frest. Helsta ástæðan er hár fjármagnskostnaður. Stjórnvöld bregðast við með því að þrengja enn frekar að einkaframtakinu með auknum álögum og þyngra regluverki, sérstaklega í Reykjavík.

Það er engin sleggja. Ekkert plan.

Sjálfstæðisflokkurinn vill frjálst atvinnulíf, lægri álögur og raunverulegar lausnir. Við viljum samfélag þar sem fólk getur keypt sér eigið húsnæði. Ekki samfélag sem treystir á niðurgreiðslur og hvers kyns ríkisafskipti út í hið óendanlega.


Guðrún Hafsteinsdóttir
formaður Sjálfstæðisflokksins