28. janúar 2025

Val á landsfundarfulltrúum á Akureyri

Fulltrúaráðið og sjálfstæðisfélögin á Akureyri hafa ákveðið að boða til félagsfundar í febrúar eftir alla aðalfundi til að velja fulltrúa sína á landsfund Sjálfstæðisflokksins sem fer fram þann 28. feb. -2. mars. 

Þá verður komið í ljós hverjir eru sjálfskipaðir og hverjir hafa óskað eftir sæti í gegnum rafræna gátt Valhallar. Fundurinn verður auglýstur síðar.

F.h. stjórnar fulltrúaráðs

Þórhallur Jónsson, formaður