14. nóvember 2026

Traust

Á hverjum degi vakna landsmenn og amstur dagsins tekur við. Dagsverkin eru mörg og mismunandi en öll eiga þau sameiginlegt að ómeðvitað byggjum við allan okkar hversdag á trausti. Við stígum upp í flugvél og treystum því að flugmenn og flugvirkjar kunni sitt fag. Að sama skapi treystum við því að lyftunni í blokkinni sé rétt viðhaldið og búnaður í lagi. Við leggjum traust okkar á matvælaframleiðendur þegar við verslum í matinn. Við treystum því líka að ríkið geri ekki eignir okkar ekki upptækar og við treystum börnum okkar og maka til að koma fram af heiðarleika.

Samfélag okkar byggist á trausti. Það er undirstaða þess að samfélag geti starfað með eðlilegum hætti. Samfélag án trausts er samfélag tortryggni.

Stjórnmálamenn eiga eitt bréf í sínu „verðbréfasafni“ og það er traust. Kjósendur, hvort sem þeir eru sammála honum eður ei, verða að geta treyst því að stjórnmálamaðurinn sé traustsins verður. Hann sé heiðarlegur, segi rétt, satt og afdráttarlaust frá. Ef stjórnmálamaður er staðinn að því að ljúga að þingi og þjóð hefur hann misst traustið sem til hans var borið. Misst þann trúverðugleika sem hann þarf til að sinna skyldum sínum.

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur nú verið staðinn að því að segja þingi, og þar með þjóð, ósatt í ræðustól Alþingis. Ekki einu sinni, ekki tvisvar, heldur þrisvar. En hann er hvergi af baki dottinn, þrátt fyrir ítrekaða ósannsögli við þingheim, og sér ekkert athugavert við gjörðir sínar. Það eitt og sér fær mann til að hugsa um hver siðferðisþröskuldur ráðherrans eiginlega er.

Hér er kannski á ferðinni sú aðferð að neita öllu og vona að þing og þjóð gleymi þessu eftir því sem dagarnir líða og fari að hugsa um eitthvað annað. Kannski ætlar ráðherra sér að gera bara eins og lögreglustjórinn í laginu góða og segja „ekki benda á mig“ og reyna þess í stað að klína ábyrgðinni á einhvern annan. En ráðherra verður ekki kápan úr því klæðinu.

Það má aldrei gerast á Alþingi Íslendinga að það hafi ekki afleiðingar að ráðherra segi ósatt. Að það sé hið nýja norm stjórnmálanna að villa um fyrir löggjafarþinginu, halda aftur af upplýsingum og reyna að hylma yfir verk sín.

Fjármála- og efnahagsráðherra er rúinn trausti. Forystukonur ríkisstjórnarinnar hafa allar lýst yfir stuðningi við ráðherra og hann fékk í ofanálag óvænta stoðsendingu frá Ingu Sæland. Hún varpaði alfarið ábyrgðinni á stjórn Landsvirkjunar og kannski er það það sem koma skal. Ríkisstjórnin ætlar að henda stjórninni undir rútuna og vona að ósannsögli ráðherrans gleymist.

Ábyrgð stjórnar Landsvirkjunar á sínum störfum leysir ráðherrann ekki undan ábyrgð á því sem hann segir Alþingi. Að velta ábyrgðinni yfir á aðra gerir ósannindi ekki að sannleika.

Jens Garðar Helgason
varaformaður Sjálfstæðisflokksins og oddviti í Norðausturkjördæmi