13. maí 2014

Tölum um stjórnmál

Nú líður að kosningum.  Flokkar og frambjóðendur kappkosta að kynna sig og stefnumálin.  Við Íslendingar eigum farsæla og dýrmæta lýðræðishefð. Við eigum líka, því miður, síversnandi umræðuhefð þar sem frambjóðendur eru gjarnan í skotlínunni. 

Lítil ferðasaga.

Mér er minnisstætt ferðalag, nánast hinum megin á hnettinum,  í litlu landi þar sem er mikið frjálsræði og velmegun.  Þar sá maður glæsihallir og kerrur, götur og torg það snyrtilegasta sem ég hef séð. Þetta borgríki tilheyrði áður stærra ríki, hinu megin við mjótt sund, það tók 40 mínútna siglingu að fara yfir sundið og þar með yfir landamærin.

Hitt ríkið, handan við sundið mjóa og ímyndaða línu sem aðeins sést á landakorti, þar bjó sama þjóð með sömu landgæði, en þar voru moldarvegir og hreysi sem varla var hægt að kalla hús.  Það sást reyndar ein og ein víggirt glæsihöll sem gerði ekki annað en að undirstrika ójöfnuðinn og ömurleikann.

Það sem skilur á milli þessa tveggja hluta, áður sama ríkis, er stjórnarfarið.  Annar hlutinn var lánsamur með sína stjórnmálamenn sem var umhugað um frelsi borgaranna, velferð þeirra velsæld og öryggi. Hinir, ekki eins heppnir, fengu stjórnmálamenn sem var mest umhugað um sem mesta skattlagningu.

Stjórnmál skipta okkur miklu máli.

Misjöfn hlutskipti ríkja og landsvæða, af þessu tagi, eru því miður of algeng.  Þarna var þetta bara eitthvað svo hrópandi augljóst hvað stjórnmál skipta miklu máli.  Hvað einstaklingarnir sem valdir eru til forystu samfélaga skiptir miklu máli.  Það leiðir hugann að því hvað við Íslendingar höfum þrátt fyrir allt verið heppin með okkar stjórnarfar og stjórnmálamenn, allra flokka, þó annað mætti stundum halda af umræðunni.

Stjórnmál eru  skemmtileg.  En fyrst og fremst eru þau óendanlega mikilvæg fyrir okkur, börnin okkar, barnabörn og foreldra.

Stjórnmálamenn skipta máli.

Það skiptir máli hverjir og hverskonar einstaklingar eru valdir til forystu í samfélaginu. Góður stjórmálamaður þarf að hafa brennandi áhuga, skýra, jákvæða og uppbyggilega sýn og taka samfélagslega hagsmuni framyfir sína eigin.

Ég er svo lánsamur að hafa fengið að kynnast umbuninni fyrir velheppnað starf í þágu okkar allra.  Hún er fyrst og fremst sálræn en mjög raunveruleg samt sem áður.

Stóri vinningurinn er þó sá að eiga þetta góða land og flotta bæ með öllum lífsins gæðum.En verkefninu er ekki lokið, því lýkur aldrei og það eru brýn verkefni sem bíða nýrra bæjarfulltrúa. Í stórum og smáum ákvörðunum fyrir bæjarfélagið eiga þeir að hafa reisn og virðingu einstaklingsins, einstaklingsfrelsið að leiðarljósi.

Baldvin Valdemarsson.

Baldvin er  verkefnastjóri og skipar fimmta sæti framboðslista Sjálfstæðiflokksins á Akureyri