22. mars 2026
Stærsti flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins

Flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins 2026 lauk á Hilton Hótel Nordica í dag þar sem yfir 400 Sjálfstæðismenn komu saman og stilltu saman strengina fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Þá var stjórnmálaályktun afgreidd í lok fundar.
Þessi flokksráðsfundur er sá stærsti í sögu Sjálfstæðisflokksins en flokksmenn létu ekki veðurguðina koma í veg fyrir að taka þátt í þessari miklu hátíð sem fundurinn var.
Fundurinn hófst í morgun með fjórum málstofum sem voru vel sóttar en svo komust færri að en vildu á málstofu um Evrópusambandið. Eftir léttan hádegisverð var svo komið að setningarræðunni.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, fór á kostum í 30 mínútna langri ræðu sinni þar sem hún fór yfir áherslur flokksins næstu misseri og skaut föstum skotum á vinstri stjórn Kristrúnar Frostadóttur.
Eftir það var á dagskrá þrískipt pallborð þar sem flokksforystan og oddvitar úr sveitarstjórnum, þ.á.m. Berglind Ósk Guðmundsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, spjölluðu við Gísla Frey Valdórsson en svo tóku ungir sviðið er Davíðs Oddssonar var minnst.
Stjórnmálaályktun var svo samþykkt í lok fundar eftir snarpar og skemmtilegar samræður eins og Sjálfstæðismönnum einum er lagið.

