20. febrúar 2026
Stefán Friðrik endurkjörinn formaður Sleipnis

Stefán Friðrik Stefánsson var endurkjörinn formaður Málfundafélagsins Sleipnis á aðalfundi félagsins í gærkvöldi.
Stefán Friðrik hefur gegnt formennsku í Sleipni frá árinu 2011 og setið í stjórn félagsins frá árinu 2006. Stefán Friðrik var formaður Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, 2003-2006 og hefur verið ritstjóri Íslendings frá árinu 2010 og varaformaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins frá árinu 2022.

Í aðalstjórn voru einnig kjörin: Harpa Halldórsdóttir, Jón Orri Guðjónsson, Jón Oddgeir Guðmundsson og Ragnar Ásmundsson. Í varastjórn voru kjörnir: Karl Guðmundsson, Davíð Þ. Kristjánsson og Jóhann Gunnarsson.
Fram kom í skýrslu stjórnar að stjórn Sleipnis hefði fundað ellefu sinnum á starfsárinu og félagið haldið tíu viðburði í sínu nafni. Í ræðu sinni minntist formaður Halldórs Blöndal, fyrrum ráðherra og þingforseta, sem var heiðursfélagi í Sleipni. Halldór lést í desember sl, 86 ára að aldri.