25. febrúar 2026
Sólveig María kjörin formaður fulltrúaráðs

Sólveig María Árnadóttir var kjörin formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri á aðalfundi í gærkvöldi. Sólveig María var ritari stjórnar fulltrúaráðs síðastliðið starfsár.
Auk hennar voru Ásgeir Högnason, Kristján Blær Sigurðsson og Valdemar Karl Kristinsson kjörnir í aðalstjórn fulltrúaráðs á aðalfundinum.
Auk þeirra sitja í stjórn formenn sjálfstæðisfélaganna á Akureyri;
Gerður Ringsted, formaður Varnar, félags sjálfstæðiskvenna
Ísak Svavarsson, formaður Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna
Kristinn Frímann Árnason, formaður Sjálfstæðisfélags Hríseyjar
Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Málfundafélagsins Sleipnis
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, formaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, formaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar
Í varastjórn fulltrúaráðs voru kjörin: Jón Þór Kristjánsson, Aðalheiður Steina Guðmundsdóttir, Jósavin Heiðmann Arason og Aníta S. Pétursdóttir.

