6. apríl 2026

Skattahækkun á baðlón - geta þau ekki alveg borgað meira?

Sjálfstæðisflokkurinn heldur fund fimmtudaginn 9. apríl kl. 17:00 í Skógur Bistro í Skógarböðunum um skatthækkunaráform ríkistjórnarinnar á baðlón.

Ferðaþjónustan varð fyrir miklu áfalli þegar fram kom í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar að til stæði að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11 prósentum í 24 prósent.

Skógarböðin voru opnuð 2022, þau voru stækkuð í fyrra og hótel er nú í byggingu við böðin. Til standa mikil uppbygging í kringum Skógarböðin og reiknað er með fjárfestingu uppá sex og hálfan milljarð á svæðinu.

Á fundinum verða með framsögu:
Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og oddviti í Norðausturkjördæmi
Berglind Ósk Guðmundsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri
Finnur Aðalbjörnsson, eigandi Skógarbaðanna

Opnað verður svo fyrir umræðu. Hlökkum til að sjá sem flesta!