23. desember 2024

Sjálfstæðisflokkurinn í stjórnarandstöðu

Önnur ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar var leyst frá störfum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum nú síðdegis. Hún hafði þá setið frá 9. apríl sl. og sem starfsstjórn síðan um miðjan október þegar þing var rofið. 

Sjálfstæðisflokkurinn fer nú í stjórnarandstöðu eftir ellefu og hálfs árs samfellda stjórnarsetu, fyrst í stjórn með Framsóknarflokki 2013-2017, með Viðreisn og Bjartri framtíð 2017 og með Framsóknarflokki og VG frá 2017.

Að baki er áratugur krefjandi verkefna við stýrið í ríkisstjórn með fjölþættum árangri og framförum á örlagatímum jafnt í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu. Bjarni Benediktsson er eini ráðherra Sjálfstæðisflokksins sem hefur setið í ríkisstjórn í gegnum þessa samfelldu stjórnarsetu, lengst af sem fjármálaráðherra í áratug en tvívegis forsætisráðherra í tæpt ár. Bjarni hefur verið formaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 2009.

Nú tekur við völdum ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Sjálfstæðisflokkurinn leiðir nú stjórnarandstöðu með fjórtán þingmenn og mun halda nýrri ríkisstjórn við efnið og veita henni nauðsynlegt aðhald. Ekki veitir af miðað við stjórnarsáttmálann sem vekur fleiri spurningar um aðgerðir og efndir en svör.