22. maí 2018

Sálfræðiþjónusta í skólum

Í samfélaginu hefur skapast mikil umræða um kvíða og þunglyndi barna og unglinga og nauðsyn þess að tekið sé á málum og aðstoð við þennan hóp aukin. Ákveðin skref hafa verið stigin í þá átt en þau eru meðal annars fólgin í því að öll börn í 5. bekk í grunnskólum á Akureyri eru skimuð fyrir kvíða og depurð og þeim börnum sem skimast boðin viðeigandi úrræði.

Sálfræðingur í skóla

Eitt af markmiðum okkar sjálfstæðismanna fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar er að auka sálfræðiþjónustu innan skólanna. Sú sálfræðiþjónusta sem í boði er á fræðslusviði Akureyrarbæjar fer að mestu leyti fram utan skólanna sjálfra. Mestur tími sálfræðinganna fer í greiningavinnu og teymisfundi. Við teljum rétt að stuðla að breytingum á þessu kerfi með það að markmiði að breyta þjónustunni og færa hana nær börnunum eða inn í skólana.

Sjálf hef ég undirrituð reynslu af því að vinna til fimm ára í teymi með sálfræðingi sem gegndi 50% starfi innan skólans. Mikill ávinningur var að því fyrir nemendur, starfsfólk og foreldra/forráðamenn og mikið var leitað til viðkomandi. Sálfræðingurinn sat alla nemendaverndarráðsfundi og var því vel inni í öllum málum. Hann var ráðgefandi við starfsfólk og þá sér í lagi kennara varðandi vinnu með nemendur með ADHD, einhverfu, þroskafrávik, kvíða og aðrar sérþarfir eða þá sem glímdu við vanlíðan.

Þar sem sálfræðingurinn vann í skólanum sjálfum átti hann hægt um vik með að fylgjast með börnum í kennslustundum og öðrum skólaaðstæðum og aðstoða við að finna leiðir til að mæta þörfum þeirra. Hann sá einnig um ákveðna handleiðslu til kennara sem þeir voru mjög ánægðir með.

Góð líðan nemenda

Áföll eru hluti af lífinu sem allir þurfa að takast á við á hvaða aldursskeiði sem er, börn eru þar ekki undanskilin. Skilnaður foreldra, veikindi og andlát nákominna ættingja hafa eðlilega mikil áhrif á líðan barna og unglinga. Þegar slík áföll dynja yfir er ómetanlegt að hafa sálfræðing innan skólans sem fljótur er að fara inn í aðstæður og veita viðeigandi stuðning.

Það veitir foreldrum/forráðamönnum einnig öryggi að vita af því að barnið fær aðstoð innan skólans. Að sjálfsögðu leysir skólasálfræðingur ekki allan vanda og þegar hann telur þörf á þá vísar hann málinu í réttar hendur út fyrir skólann.

Ég hef fulla trú á því, og hef reynt, að við getum bætt líðan barnanna okkar með því að færa aðstoð sálfræðinga nær þeim. Þannig getum við tekið á vanda fljótt og örugglega.

Því viljum við ná fram. 


Lára Halldóra Eiríksdóttir , grunnskólakennari
skipar 4. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri