17. nóvember 2024

Ræðum kosningamálin við frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins

Málfundafélagið Sleipnir boðar til funda með efstu frambjóðendum á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi til að ræða kosningamálin á kosningaskrifstofunni í Geislagötu 5.

Jón Þór Kristjánsson, frambjóðandi í 4. sæti, verður gestur á fundi þriðjudaginn 19. nóvember kl. 18:00.
Njáll Trausti Friðbertsson, frambjóðandi í 2. sæti, verður gestur á fundi fimmtudaginn 21. nóvember kl. 18:00
Jens Garðar Helgason, frambjóðandi í 1. sæti, verður gestur á fundi mánudaginn 25. nóvember kl. 18:00
Berglind Harpa Svavarsdóttir og Telma Ósk Þórhallsdóttir, frambjóðendur í 3. og 5. sæti, verða gestir á fundi þriðjudaginn 26. nóvember kl. 18:00

Við kynnumst frambjóðendunum, áherslum þeirra, þeim málum sem þau brenna fyrir og persónunni á bakvið frambjóðandann.

Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis

Allir velkomnir - heitt á könnunni