Röðun 2026
Röðunarfundur var haldinn í Naustaskóla 7. febrúar sl. með kosningu aðal- og varamanna í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Akureyri um fjögur efstu sætin á framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í sveitarstjórnarkosningum 16. maí 2026.
1. Berglind Ósk Guðmundsdóttir
119 greiddu atkvæði. Berglind Ósk hlaut 61 atkvæði en Þórhallur Jónsson hlaut 55 atkvæði. Þrjú atkvæði voru auð og ógild.
2. Heimir Örn Árnason
120 greiddu atkvæði. Heimir Örn hlaut 74 atkvæði og Þórhallur Jónsson 45 atkvæði. 1 atkvæði var autt eða ógilt.
3. Arna Rut Gunnarsdóttir
119 greiddu atkvæði. Arna Rut hlaut 60 atkvæði og Þorsteinn Kristjánsson hlaut 56 atkvæði. 3 atkvæði voru auð eða ógild.
4. Þórhallur Harðarson
119 greiddu atkvæði. Þórhallur hlaut 69 atkvæði og Vilmundur Árnason hlaut 10 atkvæði. 40 atkvæði voru auð eða ógild.
Kosning í fjögur efstu sætin er bindandi fyrir kjörnefnd sem mun í kjölfarið leggja fram tillögu að fullskipuðum framboðslista.
Samræmdar reglur um Röðun


