1. febrúar 2026

Þórhallur Harðarson gefur kost á sér í 4. sæti

Þórhallur Harðarson, framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands, gefur kost á sér í 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í sveitarstjórnarkosningunum í vor, í röðun sem fram fer í fulltrúaráði 7. febrúar.

Tilkynning Þórhalls er eftirfarandi:

"Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í 4. sæti í röðun sem fram fer 7. febrúar.

Akureyri er heimabærinn minn, samfélag sem ég hef starfað í og brenn fyrir að efla enn frekar. Ég hef yfir 20 ára reynslu í heilbrigðisþjónustu sem framkvæmdastjóri, mannauðsstjóri, forstjóri og rekstrarstjóri, auk margra ára reynslu úr atvinnulífi og félagsstörfum. Einnig var ég í 11 ár í hótel- og veitingarekstri og lengi þar með eigin rekstur t.d. Fosshótel Húsavík sem ég var einn eiganda, rak Gamla Bauk á Húsavík og átti og rak Hlöðufell sem var minn fyrsti rekstur. Er því með blandaða þekkingu úr einkarekstri og úr stjórnun í heilbrigðisþjónustu sem nýtist bæði vel í bæjarmálunum. 

Aðaláherslur mínar fyrir næsta kjörtímabil eru:
🔵 Ábyrg og gagnsæ fjármálastjórn
🔵 Sjálfbær uppbygging og sterkt skipulag
🔵 Gott leik‑ og grunnskólastarf, með áherslu á gæði og nýsköpun
🔵 Öflugar íþróttir og menning – bætt aðstaða og sterk forvarnarstefna
🔵 Betri þjónusta, aðgengi og velferð fyrir fjölskyldur og eldri borgara
🔵 Skýr áhersla á umhverfi, orkuskipti og stafræna þróun

Ég hef ánægju af samfélagsstörfum, hef víðtæka reynslu úr nefndum, ráðum og félagslífi og trúi því að sveitarstjórnarmál eigi að snúast um sterka þjónustu, öryggi, gæði og skynsamlega nýtingu fjármuna.

Ég óska eftir stuðningi þeirra sem vilja sjá áframhaldandi, öfluga og ábyrga uppbyggingu á Akureyri og er tilbúinn að leggja mig fram í 4. sæti listans."