Opið bréf til samgönguráðherra

Samgönguráðherrann Eyjólfur Ármannsson var alsæll á dögunum þegar hann tók fyrstu skóflustunguna vegna landfyllinga nýrrar Fossvogsbrúar. Fyrirhugað er að brúin rísi í nágrenni Reykjavíkurflugvallar, einnar af lífæðum samfélagsins.
Það má öllum vera það ljóst að framkvæmdir við nýja Fossvogsbrú munu hafa truflandi áhrif á notkun norður-suður flugbrautarinnar, aðalflugbrautar flugvallarins á meðan á framkvæmdum stendur.
Varaflugvöllurinn og almannavarnarhlutverkið
Við þekkjum öll mikilvægi Reykjavíkurflugvallar sem öryggisinnviðar, það hlutverk hefur frekar aukist á tímum jarðelda og annarra náttúruhamfara, óstöðugleika í heimsmálunum og aukinnar flugumferðar til og frá landinu. Hér er einnig rétt að benda á mikla fjölgun í sjúkrafluginu innanlands.
Reykjavíkurflugvöllur er einn fjögurra alþjóðaflugvalla landsins og gegnir stóru og mikilvægu hlutverki sem varaflugvöllur fyrir flug til og frá Keflavíkurflugvelli.
Þá er almannavarnahlutverk vallarins fyrir íslenskt samfélag mjög mikilvægt eins og bent hefur verið á og eru viðbragðsaðilar og bjargir flutt frá flugvellinum á vettvang slysa og hamfara.
Getuleysi íslenskrar stjórnsýslu
Flug og flugtengd starfsemi á stóran sess í efnahag þjóðarinnar og er atvinnulíf í kringum Reykjavíkurflugvöll stór þáttur í þeim umsvifum. Það er því skylda okkar að hafa varann á þegar farið er í umfangsmiklar framkvæmdir í nágrenni flugvallarins. Það hefur verið þrengt um of að flugvellinum að undanförnu, verið vandamál að fjarlægja tré og enn frekari áform um að þrengja að flugvellinum, meðal annars með fyrirhugaðri nýrri byggð í Skerjafirði. Öryggisnefnd félags íslenskra atvinnuflugmanna hefur varað mjög við þeirri framkvæmd.
Allt þetta lækkar notkunarstuðul flugvallarins, sem dregur niður rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar. Hér er um grundvallarhagsmuni að ræða sem varða þjóðaröryggi. Getuleysi íslenskrar stjórnsýslu er algjört. Það er með hreinum ólíkindum hvernig hefur verið staðið að málum um langt árabil í málefnum Reykjavíkurflugvallar.
Stöndum með Reykjavíkurflugvelli