Menntun án landamæra

Samfélagið er að taka miklum breytingum vegna gríðarlegrar þróunar á sviði tækni og sumir tala um byltingu í því sambandi. Í dag má segja að kennslustofan eins og flestir þekkja hana sé orðin án allra takmarkana þegar litið er til tækniþróunar.
Rafrænt nám
Kennsla er ekki lengur háð staðsetningu eða stundaskrá. Nám getur farið fram rafrænt í rafrænu námsumhverfi þar sem verkefni eru lögð fram, unnin og metin. Skilvirkni tækninnar felst í því að kennari getur fylgst náið með því hvernig nemandinn stundar nám sitt, aðstoðað hann rafrænt og metið hvaða árangri hann er að ná. Meginhugsunin er sú að tæknin er nýtt í skólastarfinu til að auka skilvirkni en um leið skapa sveigjanleika.
Henni er ekki ætlað að gjörbreyta hefðbundnum kennsluháttum heldur að ná yfirsýn yfir vinnuframlag nemenda sama hvort það fer fram í kennslustofunni eða utan hennar. Nemendum er um leið kennt að nýta tíma sinn vel. Rafrænt nám skapar sveigjanleika sem getur verið eftirsóknarvert fyrir nemendur, kennara og skólann. Einstakir skólar og jafnvel sveitarfélög ættu að sameinast í framsetningu rafrænna námskeiða. Beita þarf skynseminni og horfa heildrænt yfir sviðið því það þurfa ekki allir að finna upp hjólið.
Með skipulögðu rafrænu námi geta nemendur frá fleiri en einum grunnskóla verið á sama námskeiðinu. Með þessu móti geta nemendur í Grímsey og Hrísey til að mynda sótt sama námskeið og nemendur á fastalandinu svo dæmi sé tekið um tækifæri sem þetta skapar. Dæmi um góða framsetningu og árangur á þessu sviði er K12 verkefnið (www.k12.com) í Bandaríkjunum og Sveaskolan í Svíþjóð (www.sveaskolan.nu).
Að nýta tíma vel
Hagræðing í kennslu með því að nýta rafræna tækni skapar fjárhagslegt svigrúm í rekstri skóla m.a. til kaupa á búnaði, hækkunar launa og eflingu endurmenntunar starfsfólks. Svigrúm skapast einnig með því að tími er nýttur betur og meira svigrúm myndast í skólastarfinu til að sinna félagslegum þáttum og sköpunarþáttum.
Aðferðir rafrænnar kennslu hafa þróast og eflst með tímanum, þær skapa fjölbreytni og eru á margan hátt heppilegar fyrir nemendur með ólíkan bakgrunn og ólíkar þarfir. Með því að nýta tíma nemenda betur myndast svigrúm í skólakerfinu þar sem nemendur geta stundað nám sitt á misjöfnun hraða. Með aðferðum rafrænnar kennslu má stytta grunnskólagöngu nemenda á forsendum nemenda og viðmiðunum skóla um árangur.
Grænt og vænt
Rafrænir kennsluhættir stuðla að minni pappírsnotkun, gera ráð fyrir notkun rafrænna kennslubóka og létta skólatösku nemenda. Rafrænt námsefni getur skilað skilvirkni í yfirferð efnis með því að nýta sjálfvirkni tækninnar. Tæknin skapar einnig svigrúm þegar um veikindi eða tímabundna fjarveru er að ræða.
Áhersla á upplýsinga- og samskiptatækni
Rafrænir kennsluhættir kalla á endurmenntun, ráðgjöf og stuðning við starfsmenn skóla í notkun upplýsinga- og samskiptatækni. Fyrir Akureyri getur rafrænt skólastarf skapað fjölbreytt tækifæri. Þess vegna viljum við Sjálfstæðismenn á Akureyri efla upplýsinga- og samskiptatækni í leik- og grunnskólastarfi. Við viljum vera í fararbroddi íslenskra skóla á þessu sviði. Við viljum byggja upp til framtíðar.
Bergþóra Þórhallsdóttir
aðstoðarskólastjóri, skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri