15. september 2026

Innheimta félagsgjalda

Kæru félagar,

Nú þegar haustið er gengið í garð fer starf sjálfstæðisfélaganna á Akureyri aftur af stað af fullum krafti.

Framundan er fjölbreytt félagsstarf og við viljum skapa sem flest tækifæri fyrir félagsmenn til að hittast, ræða málin og taka virkan þátt. Félagið er fólkið sem í því er og því skiptir miklu máli að sem flestir taki þátt og móti starfið með okkur.

Félagsgjöld eru mikilvægur þáttur í því að standa undir öflugu og fjölbreyttu félagsstarfi.

  • Félagsgjaldið er 3.500 kr.
  • Allir félagsmenn 18 ára og eldri fá senda valkvæða kröfu í netbanka
  • Sé krafan ekki greidd fellur hún sjálfkrafa niður að eindaga liðnum
  • Ekki er hægt að eyða kröfunni eða fela hana í netbankanum


Á komandi dögum munu birtast kröfur í netbönkum félagsmanna. Við hvetjum félagsmenn til að greiða félagsgjaldið og styðja þannig við áframhaldandi öflugt félagsstarf.


Sólveig María Árnadóttir
formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri