16. nóvember 2026

Ingvar Þóroddsson til liðs við Sjálfstæðisflokkinn

Ingvar Þóroddsson, alþingismaður, er genginn í þingflokk Sjálfstæðisflokksins en koma hans var samþykkt einróma á þingflokksfundi flokksins í dag.

Ingvar hefur setið á alþingi fyrir Viðreisn í Norðausturkjördæmi frá 2024 og hefur sinnt embætti 2. varaforseta Alþingis. Hann er einnig 1. varaformaður atvinnuveganefndar og situr einnig í velferðarnefnd.

Ingvar er 28 ára gamall Akureyringur með Stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri, BS-próf í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands og MS-próf í iðnaðarverkfræði frá Kaliforníuháskóla í Berkeley 2023. Hann starfaði sem stærðfræði- og eðlisfræðikennari við Menntaskólann á Akureyri áður en hann var kjörinn á þing.

Með komu Ingvars telur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins nú fimmtán þingmenn. Sjálfstæðisflokkurinn verður með því jafnstór og Samfylkingin sem eru þá stærstu flokkar Alþingis.

„Ég hef alltaf aðhyllst Sjálfstæðisstefnuna og fagna því að vera kominn í Sjálfstæðisflokkinn. Ég hef átt gott samstarf við þingmenn Sjálfstæðisflokksins á kjörtímabilinu en það hefur styrkt sannfæringu mína um að mín hugsjón á samleið með Sjálfstæðisflokknum. Ég geng til liðs við þingflokkinn á þeim grunni og hlakka til að vinna með honum að auknu frelsi einstaklinga, öflugu atvinnulífi og ábyrgð í ríkisfjármálum,“ segir Ingvar Þóroddsson, nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

„Við bjóðum Ingvar Þóroddsson velkominn í þingflokk Sjálfstæðisflokksins. Ég sagði í ræðu minni á landsfundi þegar ég varð formaður að ég ætlaði að stækka flokkinn og bjóða fólk velkomið heim og ég meinti það. Ingvar er ungur maður sem hefur látið að sér kveða í pólitík svo eftir því hefur verið tekið. Hans sýn á mikinn samhljóm með sjálfstæðisstefnunni og því hlökkum við til að vinna með honum,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins.

„Ég fagna komu Ingvars í þingflokk Sjálfstæðisflokksins. Ég þekki hann og fjölskyldu hans vel og hef gert lengi. Ingvar er drengur góður, eldklár og stendur fastur á sínu. Hann er mikill hægri maður og er því fengur fyrir þingflokkinn okkar. Við bjóðum þennan sómasvein velkominn í þingflokk Sjálfstæðisflokksins,“ segir Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og oddviti í Norðausturkjördæmi.