Helgi Ólafsson látinn

Helgi Ólafsson, formaður Sjálfstæðisfélags Raufarhafnar, lést 27. október sl. 97 ára að aldri. Helgi var ötull og öflugur í félagsstarfi Sjálfstæðisflokksins um áratugaskeið í Norðurlandskjördæmi eystra og í hinu nýja Norðausturkjördæmi - traust fyrirmynd í því að vinna af krafti og aldur væri afstætt hugtak í elju og jákvæðu lífsformi.
Helgi fæddist 31. maí 1929 á Raufarhöfn og ólst þar upp, aðeins örfáum dögum yngri en Sjálfstæðisflokkurinn sem stofnaður var 25. maí 1929 með samruna Íhaldsflokksins og Frjálslynda flokksins. Foreldrar Helga voru hjónin Ólafur Árni Ágústsson, f. 1903 á Ósi í Skilmannahreppi í Borgarfjarðarsýslu, d. 1982, verkstjóri, vélstjóri og hafnsögumaður á Raufarhöfn, og Sigríður Guðmundsdóttir, f. 1908, d. 1990, húsfreyja og verslunarkona á Raufarhöfn.
Helgi gekk í barnaskóla og unglingaskóla Raufarhafnar og Iðnskóla Siglufjarðar, og var í sveit á Oddsstöðum á Melrakkasléttu.
Hann öðlaðist meistararéttindi rafvirkja árið 1955 og starfaði við fag sitt vel fram á tíræðisaldur. Hann hlaut titilinn Iðnaðarmaður ársins 2020, kominn yfir nírætt og enn iðinn við fag sitt, sló hvergi af metnaði sínum og kröftum í rafiðn sinni.
Helgi vann við vélgæslu í frystihúsinu Jökli á Raufarhöfn og vann síðan við vélgæslu og fleira hjá Rafveitu Raufarhafnar. Hann var slökkviliðsstjóri 1968-1994 og hlaut viðurkenningu fyrir störf sín frá Brunamálastofnun ríkisins.
Helgi var í sveitarstjórn Raufarhafnar í 20 ár og var formaður Sjálfstæðisfélags Raufarhafnar til æviloka. Hann var fréttaritari Morgunblaðsins um árabil. Helgi var með hafnsögubát meðan faðir hans var hafnsögumaður á Raufarhöfn. Helgi starfaði í Lionsklúbbi Raufarhafnar og formaður Félags eldri borgara á Raufarhöfn um langt skeið, ötull og iðinn í því starfi sem og öðru.
Eiginkona Helga er Stella Borgþóra Þorláksdóttir, f. 12. desember 1931 á Siglufirði, fyrrverandi skrifstofumaður og póstmeistari á Raufarhöfn. Foreldrar hennar voru Þorlákur Anton Þorkelsson, f. 14.12. 1897, d. 24.1. 1980, skipstjóri á Siglufirði, og Ásta Júlíusdóttir, f. 16.4. 1900, d. 14.5. 1970, framreiðslukona og húsmóðir á Siglufirði og í Reykjavík.
Börn Helga og Stellu eru 1) Sigríður Kristín Helgadóttir, f. 1948, sundlaugarvörður á Raufarhöfn. Maki: Bjarni Hermannsson, bifreiðarstjóri á Raufarhöfn. 2) Ólafur Helgi Helgason, f. 1949, verslunarmaður í Reykjavík. Maki: Sigrún Klara Sigurðardóttir, starfsmaður Heimaþjónustu Reykjavíkur; 3) Þorlákur Ástmar Helgason, f. 1959, matreiðslumaður í Reykjavík. Maki: Klara Sveinsdóttir, framreiðslumaður og yfirþjónn í Reykjavík; 4) Hannes Helgason, f. 1966, framleiðslustjóri á Akureyri. Maki: Eydís Hrönn Vilhjálmsdóttir, hjúkrunarfræðingur á Akureyri; 5) Júlíus Helgason, f. 1967, verkstæðismaður á járn og tré á Raufarhöfn. Maki: Svava Árnadóttir, bankastarfsmaður á Raufarhöfn; 6) Ásta Helgadóttir, f. 1970, húsfreyja á Spáni. Maki: Ragnar Þormar sjómaður. Helgi og Stella ólu einnig upp bróður Stellu, Róbert Þorláksson, frá 11 ára aldri til fullorðinsára. Helgi og Stella eiga stóran hóp afkomenda eins og nærri má geta.
Í viðtali við Helga í Morgunblaðinu þegar hann varð níræður í maí 2019 sagði hann: "Ég hef gaman af að leika mér með ljósmyndavél, stunda gæsaveiðar á haustin og rjúpnaveiðar á vetrum. Ég náði ekki mörgum síðasta vetur, sex rjúpur voru það. Ég er hættur að fara einsamall á veiðar og fer með syni mínum, Júlíusi.“
Helgi setti upp listaverk sitt, Drekann á hafnargarðinum við smábátahöfnina á Raufarhöfn og spúði hann á nokkurra sekúndna fresti. Í fyrrnefndu viðtali sagði Helgi: "Ég er núna að breyta um eldaðferð á drekanum, geri hana öruggari þannig að maður geti ráðið því hvenær hann spýr eldinum". Níræður tók Helgi enn að sér rafmagnsverkefni fyrir bæjarbúa í neyðartilvikum, eins og hann orðaði það, og sagðist tilbúinn að borga með sér til að hafa eitthvað að gera við að fara milli staða.
Þegar Stella eiginkona Helga veiktist og varð að dvelja á sjúkrahúsi á Akureyri í rúman mánuð þegar þau stóðu á níræðu keyrði Helgi á milli Raufarhafnar og Akureyrar til að heimsækja hana. Í viðtalinu sagði hann: "Ég stoppa í tvo til þrjá daga á Akureyri en fer svo heim til að gera eitthvað í höndunum svo ég verði ekki vitlaus. Fyrir fjórum dögum hlóð ég upp vegg í bílskúrsdyrnar heima hjá mér, setti upp glugga og pússaði vegginn.“
Helgi tók nokkrum sinnum sæti á framboðslistum; hafði verið í sveitarstjórn á sínu svæði eins og fyrr segir. Þau hjón mættu jafnan á öll kjördæmisþing og hann lét sig ekki vanta á landsfundum framundir það síðasta. Í alþingiskosningunum 2009 skipaði Helgi heiðurssæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi.
Í alþingiskosningunum 2021 var ákveðið að Helgi, sem þá var 92 ára, skipaði 11. sætið, yrði fyrir miðju listans sem öflugur fulltrúi eldri borgara. Þegar listinn var samþykktur í Mývatnssveit 2021 í miðjum samkomutakmörkunum vakti verðskuldaða athygli að Helgi og Stella mættu á eigin bíl og létu sóttvarnartakmarkanir og fjarlægðir ekki stöðva sig, bæði svo ern og öflug, til í baráttuna.
Í alþingiskosningunum 2024 skipaði Helgi svo að nýju heiðurssætið á listanum í Norðausturkjördæmi, 95 ára að aldri og elsti frambjóðandinn í þeim kosningum - ötull í flokksstarfinu allt til æviloka.
-----
Sjálfstæðismenn í Norðausturkjördæmi minnast Helga Ólafssonar með hlýju og virðingu. Hann var einn af síðustu lykilmönnum gamla tímans í flokksstarfinu í Norðurlandskjördæmi eystra sem enn var með okkur af elju og krafti í Norðausturkjördæmi - setti mark sitt á viðburði og fundi með jákvæðni sinni, ljúfleika og hlýju.
Maður margra árstíða, sagði skemmtilegar sögur frá fyrri tíð og setti sig óhikað í spor okkar yngri með því að sækjast eftir því að miðla reynslu sinni og lífsgleði til samferðamanna sinna í samfélagi sínu og í hópi sjálfstæðismanna á ólíkum aldri á kjördæmisþingum og landsfundum allt til æviloka.
Minningin um mannkosti og iðjusemi Helga mun lifa áfram. Við vottum Stellu og fjölskyldunni allri innilega samúð á sorgarstundu. Blessuð sé minningin um heiðursmanninn Helga Ólafsson á Raufarhöfn.
Stefán Friðrik Stefánsson
ritstjóri Íslendings

