Föstudaginn 25. september verður blásið til golfmóts á Jaðarsvelli!
Spilaðar verða 9 holur í Texas Scramble, þar sem tveir kylfingar mynda lið. Ræst verður út af öllum teigum kl. 17:00 og mæting er í golfskálann á Jaðri eigi síðar en 16:45.
Vegleg verðlaun verða í boði, meðal annars:
• Nándarverðlaun
• Lengsta teighögg
• Fleiri skemmtileg verðlaun og óvæntar uppákomur
Greiðslu er krafist við skráningu og mótsgjald er óendurkræft eftir 15. september.
Kylfingar sem ekki eru skráðir í golfklúbb geta haft samband við skrifstofu GA í skrifstofa@gagolf.is eða síma 462-2974 til að skrá sig.
Kvöldið endar ekki á golfvellinum!
Upplýsingar um veisluna um kvöldið verða kynntar síðar!
Frekari upplýsingar inná islendingur.is og golfbox.dk
hlökkum til að sjá ykkur á Jaðri!

