19. apríl 2015

Vöfflukaffi á sumardaginn fyrsta

Sjálfstæðismenn á Akureyri munu fagna sumarkomu með því að koma saman í vöfflukaffi í Kaupangi á sumardaginn fyrsta, 23. apríl, frá kl. 15:00.

Hvetjum alla sjálfstæðismenn til að mæta í vöfflukaffi og fagna sumarkomu með okkur.