16. janúar 2016

Vinningshafi í jólakrossgátu Íslendings

Dregið hefur verið úr réttum lausnum í jólakrossgátu sem birt var í jólablaði Íslendings. Vinningshafinn er Greta Kristín Hilmarsdóttir. Í vinning hlýtur hún dögurð (brunch) fyrir tvo hjá Icelandair Hotel Akureyri.

Við óskum vinningshafanum innilega til hamingju og þökkum öllum sem sendu inn lausnir að krossgátunni kærlega fyrir þátttökuna.