21. ágúst 2015

Varaformannsskipti hjá Verði, f.u.s. á Akureyri

Á fundi stjórnar Varðar, f.u.s á Akureyri, í kvöld var Axel Þórhallsson kjörinn varaformaður félagsins, eftir að Ingvar Leví Gunnarsson lét af varaformennsku og vék úr aðalstjórn.

Baldvin Jónsson tekur sæti í aðalstjórn Varðar samhliða þessu, en Ingvar Leví fer í varastjórn félagsins í stað Baldvins.