25. janúar 2014

Utankjörfundarkosning í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Utankjörfundarkosning í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri hefst mánudaginn 27. janúar nk. og stendur til föstudags 7. febrúar nk.

Kosið verður sem hér segir:

Akureyri
Skrifstofa Sjálfstæðisflokksins í Kaupangi v/Mýrarveg
Kosning virka daga kl. 15:00 – 18:00 og laugardaginn 1. febrúar kl. 10:00 – 13:00
Tengiliður: Stefán Friðrik Stefánsson - s: 8478492

Reykjavík
Skrifstofa Sjálfstæðisflokksins í Valhöll
Kosning virka daga kl. 9:00 – 17:00
Tengiliður: Petrea Jónsdóttir - s: 5151700

Grímsey
Félagsheimilið
Kosning miðvikudaginn 5. febrúar kl. 14:00 – 18:00
Tengiliður: Bjarni Magnússon - s: 8933101


Kynning á frambjóðendum

Athugið: kjósa skal sex frambjóðendur í töluröð, hvorki fleiri né færri


Hverjum er heimil þátttaka í prófkjörinu?

  1. Öllum fullgildum meðlimum sjálfstæðisfélaganna í sveitarfélaginu sem þar eru búsettir og náð hafa 15 ára aldri prófkjörsdaginn.

  2. Þeim stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins sem eiga munu kosningarrétt í sveitarfélaginu við sveitarstjórnarkosningar, 31. maí 2014, og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í sveitarfélaginu fyrir lok kjörfundar.

 

Kjósendur þurfa að vera viðbúnir því að sýna persónuskilríki.

Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins á Akureyri