8. febrúar 2014

Úrslit í prófkjöri - Gunnar Gíslason í 1. sæti

Úrslit liggja fyrir í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri. Greidd atkvæði í prófkjörinu voru 1206, þar af 1187 atkvæði gild. 19 atkvæði voru auð eða ógild. Kjörsókn í prófkjörinu var 53%.

Gunnar Gíslason, fræðslustjóri Akureyrarbæjar, sigraði í prófkjörinu og er því nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri. Gunnar hlaut 48,9% atkvæða í fyrsta sætið.

Röð sex efstu breyttist ekki frá fyrstu tölum. Úrslitin eru bindandi fyrir fimm efstu sætin.

Úrslit eru eftirfarandi:

1. Gunnar Gíslason, með 580 atkvæði í 1. sæti
2. Eva Hrund Einarsdóttir, með 583 atkvæði í 1. - 2. sæti
3. Njáll Trausti Friðbertsson, með 616 atkvæði í 1. - 3. sæti
4. Bergþóra Þórhallsdóttir, með 736 atkvæði í 1. - 4. sæti
5. Baldvin Valdemarsson, með 767 atkvæði í 1. - 5. sæti
6. Sigurjón Jóhannesson, með 592 atkvæði í 1. - 6 sæti


Úrslit í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri 2014