5. nóvember 2015

Ungt fólk - framtíðin í flokksstarfinu

Málfundafélagið Sleipnir boðar til umræðufundar í Kaupangi laugardaginn 14. nóvember nk. kl. 11:00. Rætt um ungt fólk og framtíðina í stjórnmálastarfinu.

Ungir sjálfstæðismenn komu sterkir til leiks á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í síðasta mánuði og náðu miklum árangri með samstöðu sinni og vöktu verðskuldaða athygli.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, og Elvar Jónsson, varaformaður SUS, flytja framsögu og svara fyrirspurnum.

Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis.

Boðið upp á morgunhressingu - allir velkomnir.