7. mars 2016
Umræðufundur um skipulagsmál 12. mars


Málfundafélagið Sleipnir heldur umræðufund í Kaupangi um skipulagsmál á Akureyri laugardaginn 12. mars kl. 11:00.
Bjarki Jóhannesson, skipulagsstjóri, og Tryggvi Már Ingvarsson, formaður skipulagsnefndar, flytja framsögu og svara fyrirspurnum ásamt Sigurjóni Jóhannessyni, nefndarmanni Sjálfstæðisflokksins í skipulagsnefnd.
Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis og varamaður Sjálfstæðisflokksins í skipulagsnefnd, og áheyrnarfulltrúi flokksins í nefndinni á síðasta kjörtímabili.
Allir velkomnir - boðið upp á létta morgunhressingu.