26. maí 2017
Umræðufundur með Njáli Trausta og Óla Birni 6. júní


Málfundafélagið Sleipnir boðar til umræðufundar í Kaupangi þriðjudaginn 6. júní kl. 20:00.
Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, og Óli Björn Kárason, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, flytja framsögu um þingstörfin og stjórnmálin almennt og svara fyrirspurnum.
Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Málfundafélagsins Sleipnis.
Heitt á könnunni - allir velkomnir.