1. október 2019

Umræðufundur með Kristjáni Þór og Njáli Trausta 5. október

Málfundafélagið Sleipnir boðar til umræðufundar í Kaupangi í kjördæmaviku þingmanna laugardaginn 5. október kl. 11:00. Rætt um stöðuna í pólitíkinni og málefni kjördæmisins.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður, flytja framsögu og svara fyrirspurnum.

Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis.

Allir velkomnir - heitt á könnunni