15. september 2016

Umræðufundur með Kristjáni Þór og Njáli Trausta 17. september

Málfundafélagið Sleipnir boðar til umræðufundar í Kaupangi laugardaginn 17. september kl. 11:00. Rætt um kosningabaráttuna og verkefnin framundan í pólitíkinni.

Framsögu flytja Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, og Njáll Trausti Friðbertsson, bæjarfulltrúi, sem skipa efstu sætin á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningum 29. október nk. 

Allir velkomnir - heitt á könnunni.


Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis