30. september 2024
Umræðufundur með Diljá Mist 5. október


Málfundafélagið Sleipnir boðar til umræðufundar í Geislagötu 5, 2. hæð, laugardaginn 5. október kl. 10:30.
Diljá Mist Einarsdóttir, alþingismaður og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, flytur framsögu og svarar fyrirspurnum.
Rætt um stöðuna í pólitíkinni og verkefnin á þessum síðasta þingvetri á kjörtímabilinu.
Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis
Allir velkomnir - heitt á könnunni