30. maí 2014

Traust kosningaefni frá ungum sjálfstæðismönnum

Ungir sjálfstæðismenn í Verði, f.u.s. troðfylltu Pósthúsbarinn á kosningagleði sinni á miðvikudagskvöldið. Njáll Trausti var með lauflétt PubQuiz, Fíllinn var með uppistand og Gylfi Víðis tók gott trúbador-prógramm. 

Ungir hafa líka komið með traust og gott kosningaefni, bæði vel útfærðan lista yfir 10 ástæður fyrir unga Akureyringa að kjósa Sjálfstæðisflokkinn og þrjár klippur sem hitta sannarlega í mark.