30. ágúst 2016

Tíu gefa kost á sér í röðun á kjördæmisþingi 3. september

Framboðsfrestur í röðun á kjördæmisþingi Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi um næstu helgi rann út í gær, 29. ágúst.

Tíu gáfu kost á sér. Kosið verður um sex efstu sæti framboðslistans á þinginu á laugardag en kjörnefnd gerir tillögu um skipan listans í heild að því loknu.

Í framboði eru: (innan sviga er sæti sem viðkomandi gefur kost á sér í)

Arnbjörg Sveinsdóttir , bæjarfulltrúi og fyrrum alþingismaður, Seyðisfirði (3.)
Daníel Sigurður Eðvaldsson , fjölmiðlafræðingur, Akureyri (5. -6.)
Elvar Jónsson , laganemi og varaformaður SUS, Akureyri (4.)
Ingibjörg Jóhannsdóttir , nemi, Dalvíkurbyggð (2. - 5.)
Ketill Sigurður Jóelsson , nemi, Akureyri (4.)
Kristján Þór Júlíusson , heilbrigðisráðherra, Akureyri (1.)
Melkorka Ýrr Yrsudóttir , nemi, Akureyri (4. - 6.)
Njáll Trausti Friðbertsson , bæjarfulltrúi og flugumferðarstjóri, Akureyri (2.)
Valdimar O. Hermannsson , bæjarfulltrúi, Fjarðabyggð (3.)
Valgerður Gunnarsdóttir , alþingismaður, Húsavík (2.)