13. desember 2017
Þórhallur í fræðsluráð


Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær var samþykkt að Þórhallur Harðarson taki sæti í fræðsluráði í stað Baldvins Valdemarssonar, sem hættir í ráðinu af persónulegum ástæðum. Baldvin hefur setið í fræðsluráði frá því í janúar 2017.
Anna Rósa Magnúsdóttir situr áfram sem varamaður Sjálfstæðisflokksins í fræðsluráði.