Sveinn Heiðar Jónsson látinn


Sveinn Heiðar Jónsson, byggingameistari og fyrrum framkvæmdastjóri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 30. apríl, 73 ára að aldri.
Sveinn Heiðar fæddist á Akureyri 26. mars 1944. Hann var sonur hjónanna Jóns Gíslasonar, trésmíða- og byggingameistara, og Jóhönnu Zophusdóttur. Sveinn Heiðar hóf snemma að starfa með föður sínum, en hann rak um 40 ára skeið Trésmíðaverkstæði Jóns Gíslasonar sem var eitt farsælasta byggingarfyrirtæki Akureyrar.
Þegar Jón dró umsvif sín saman stofnaði Sveinn Heiðar eigið fyrirtæki, Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars hf, 11. apríl 1986 og rak það fram á nýja öld. Sveinn Heiðar var virkur í byggingabransanum á Akureyri og víðar um land og lagði víða drjúga hönd á plóg. Hann sinnti mörgum félagsstörfum á sínum ferli, enda vel tengdur og öflugur til verka.
Í viðtali við Dagblaðið Dag árið 1993 rakti Sveinn Heiðar sinn feril í byggingabransanum og ræddi almennt um byggingarmál á Akureyri í gegnum árin. Viðtalið er tvískipt á síðum, hér er fyrri síðan
og hér sú seinni
.
Eiginkona Sveins Heiðars var Erla Eggerts Oddsdóttir. Erla fæddist 21. júlí 1943 og lést 30. apríl 2013. Þau hjónin létust því bæði sama mánaðardag. Sveinn Heiðar og Erla eignuðust fimm börn; Ragnheiði (f. 1964), Fríðu Björk (f. 1966), Oddnýju (f. 1968, d. 1969), Lovísu (f. 1972) og Erling Heiðar (f. 1977).
Sveinn Heiðar og Erla voru samhent hjón. Þau unnu saman að fyrirtæki Sveins Heiðars um langt skeið, allt þar til heilsa Erlu gaf sig. Erla og Svenni ferðuðust alla tíð mikið innanlands sem utan og áttu þau margar góðar stundir í húsbílnum sínum. Sveinn Heiðar gegndi formennsku í Flakkaranum, félagi húsbílaeigenda. Í viðtali við Fréttablaðið
árið 2006 ræddi Sveinn Heiðar um þátttöku sína í húsbílafélaginu.
Sveinn Heiðar og Erla voru um áratugaskeið virk í félagsstarfi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, sátu í stjórnum félaga og í nefndum af hálfu flokksins hjá Akureyrarbæ. Sveinn Heiðar var jafnan mikilvirkur í kosningabaráttu flokksins í bænum og á kjördæmavísu og lék jafnan lykilhlutverk við að efla flokkinn og styrkja til allra verka - vann ötullega við að tala máli flokksins og fá aðra til stuðnings við hann.
Í kosningabaráttu til Alþingis síðasta haust lagði hann drjúga hönd á plóg með vinum sínum og félögum eins og ávallt áður - vann af sama krafti þrátt fyrir erfið veikindi. Starfið innan flokksins og tengsl við fólk voru hans líf og yndi. Hann var líka sannur höfðingi, bauð jafnan til veislu á landsfundum og á kjördæmisþingum og veitti vel og rausnarlega.
Skarð er fyrir skildi við fráfall Sveins Heiðars. Sjálfstæðismenn á Akureyri kveðja félaga og vin með virðingu og þökk fyrir allt hans mikla starf og fyrir hina sönnu einlægu vináttu í gegnum árin. Fjölskyldu Sveins Heiðars færum við innilegar samúðarkveðjur.
Stefán Friðrik Stefánsson
ritstjóri Íslendings og formaður Málfundafélagsins Sleipnis