10. maí 2014

Sjö framboð í sveitarstjórnarkosningum í vor

Sjö framboð bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum á Akureyri 31. maí nk, fleiri en nokkru sinni fyrr.

Stefán Friðrik Stefánsson, umboðsmaður framboðslista Sjálfstæðisflokksins, skilaði inn framboði D-listans til kjörstjórnar í Ráðhúsinu kl. 9:59 í morgun. Sjálfstæðisflokkurinn varð því fyrst framboða til að skila inn gögnum vegna kosninganna til kjörstjórnar.

Framboðin í kosningunum eru; B-listi Framsóknarflokks, D-listi Sjálfstæðisflokks, L-listi Bæjarlista Akureyrar, S-listi Samfylkingarinnar, T-listi Dögunar, V-listi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, og Æ-listi Bjartrar framtíðar.