6. október 2020
Sjálfstæðisflokkurinn tekur við formennsku í frístunda- og skipulagsráði


Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í dag tók Sjálfstæðisflokkurinn við formennsku í frístunda- og skipulagsráði Akureyrarbæjar. Eva Hrund Einarsdóttir verður formaður frístundaráðs og Þórhallur Jónsson verður formaður í skipulagsráði.
Samhliða þessu mun Berglind Ósk Guðmundsdóttir sem setið hefur í frístundaráði á kjörtímabilinu taka sæti Evu Hrundar sem nefndarmaður í stjórn Akureyrarstofu það sem eftir lifir kjörtímabilsins.
Á fundinum var samstarfssáttmáli allra framboða í bæjarstjórn kynntur nánar og rætt um fjárhagsstöðu bæjarins í aðdraganda fjárhagsáætlunar sem kynnt verður í bæjarstjórn í nóvember.