28. febrúar 2014

Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í nýrri skoðanakönnun

Sjálfstæðisflokkurinn nýtur mests fylgis framboða á Akureyri skv. nýrri skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Morgunblaðið.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með rúm 23% og þrjá bæjarfulltrúa. L-listinn myndi gjalda afhroð, fá 13,1% og 1 bæjarfulltrúa í stað 6 nú.

VG, Björt framtíð og Framsóknarflokkur mælast með 2 bæjarfulltrúa hver fyrir sig, og Samfylkingin 1 bæjarfulltrúa. Bæjarlistinn, sem hefur 1 bæjarfulltrúa núna, myndi missa sinn mann.


Tölur í könnuninni (úrslit síðustu kosninga innan sviga)

Sjálfstæðisflokkurinn
23,2% - 3 fulltrúar (13,3)

VG
16,7% - 2 fulltrúar (10,4)

Björt framtíð
16,6% - 2 fulltrúar (bauð ekki fram 2010)

Framsóknarflokkur
14,7% - 2 fulltrúar (12,8)

L-listinn
13,1% - 1 fulltrúi (45%)

Samfylkingin
8,7% - 1 fulltrúi (9,6%)

Bæjarlistinn
1,2 % (8,7%)





SFS