11. apríl 2018

Samráðsfundur um gerð stefnuskrár D-listans

Ágætu félagar í Sjálfstæðisflokknum á Akureyri!

Næstkomandi fimmtudagskvöld 12. apríl kl. 19:30 er boðað til samráðsfundar með ykkur um drög að stefnuskrá flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 26. maí. Fundurinn verður í aðstöðu okkar í Kaupangi. Drögin verða kynnt og um leið er kallað eftir viðbrögðum frá ykkur um efni þeirra. Allar ábendingar ykkar verða vel þegnar. 

Mætum og ræðum saman, þannig höfum við áhrif.


Frambjóðendur xD á Akureyri 2018