21. maí 2016

Röðun við val á efstu sætum framboðslista samþykkt

Aukafundur í kjördæmisráði Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi var haldinn í Skjólbrekku í Mývatnssveit í dag. Þar var samþykkt tillaga stjórnar kjördæmisráðsins um að fram fari röðun í kjördæmisráði við val á efstu sex sætum framboðslista flokksins í alþingiskosningum í haust. Orðrétt er tillagan eftirfarandi: “ Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi samþykkir að í aðdraganda alþingiskosninga verði viðhöfð röðun skv. 56. grein skipulagsreglna Sjálfstæðisflokksins við val á framboðslista flokksins í kjördæminu vegna alþingiskosninga 2016. Kjördæmisráð samþykkir jafnframt skv. 56. grein að raða verði í sex efstu sæti listans og að kjörnefnd verði falið að stilla uppi öðrum sætum. Kjördæmisráð leggur til að röðunin fari fram á bilinu 27. ágúst til 10. september nk. Endanleg ákvörðun verður í höndum kjörnefndar. Kjördæmisráð samþykkir að á kjörskrá verði bæði aðal- og varamenn kjördæmisráðs eins og heimild er fyrir í 56. grein skipulagsreglna. “