13. október 2024

Ríkisstjórnarsamstarfinu slitið - tillaga um þingrof og kosningar í nóvemberlok

Rík­is­stjórn­ar­sam­starfi Sjálf­stæðis­flokks, Fram­sókn­ar og Vinstri grænna hef­ur verið slitið. Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráðherra, greindi frá þessari ákvörðun þingflokks Sjálfstæðisflokksins á blaðamannafundi í Stjórn­ar­ráðshúsinu nú síðdegis.

Jafnframt mun hann leggja fram tillögu um þingrof nk. fimmtudag og að kosið verði til Alþingis laugardaginn 30. nóvember nk. 
Forsætisráðherra mun hitta Höllu Tóm­as­dótt­ur, for­seta Íslands, í fyrramálið og leggja þar fram þingrofstillöguna. 

Þegar rík­is­stjórn­in var end­ur­nýjuð und­ir for­ystu Bjarna Bene­dikts­son­ar í vor var samstaða um er­indi rík­is­stjórn­ar­inn­ar væri að tak­ast á við efna­hags­mál­, út­lend­inga­mál­, orku­mál­ og breyt­ing­ar á ör­orku­líf­eyri­s­kerf­inu. Á þeim forsendum ekki hafi náðst saman um mikilvægar áherslur í útlendingamálum hafi grundvöllur samstarfsins brostið og ekki náðst samkomulag um frekari útfærslur.