Ragnhildur Helgadóttir látin


Ragnhildur Helgadóttir fyrrum ráðherra og alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, er látin, 85 ára að aldri. Hún fæddist í Reykjavík 26. maí 1930. Foreldrar hennar voru Kristín Bjarnadóttir, húsfreyja, og Helgi Tómasson, yfirlæknir. Ragnhildur útskrifaðist frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1949 og lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1958.
Ragnhildur hóf ung þátttöku í pólitísku starfi innan Sjálfstæðisflokksins. Hún tók sæti á framboðslista flokksins í Reykjavík við alþingiskosningar 1953 og aftur 1956 er hún náði kjöri á Alþingi, 26 ára að aldri, áður en hún lauk háskólanámi. Hún var yngst kvenna til að hljóta kjör á Alþingi allt þar til Jóhanna María Sigmundsdóttir náði kjöri á Alþingi vorið 2013.
Ragnhildur sat á þingi samfellt til ársins 1963 er hún hætti þingmennsku til að sinna öðrum störfum. Hún sat aftur á þingi 1971-1979 og svo aftur 1983-1991, er hún hætti virkri þátttöku í stjórnmálum. Ragnhildur var formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna 1965-1969.
Ragnhildur var önnur konan hér á landi til að gegna ráðherraembætti og fyrst kvenna til að gegna embætti menntamálaráðherra, 1983-1985, og embætti heilbrigðisráðherra, 1985-1987. Ragnhildur varð einnig fyrst kvenna forseti í deildum Alþingis, en hún var forseti neðri deildar þingsins 1961-1962 og síðar 1974-1978. Þá var hún fyrsta konan sem gegndi embætti forseta Norðurlandaráðs árið 1975.
Sem ráðherra markaði Ragnhildur ekki aðeins söguleg skref í kvennabaráttuna með setu sinni heldur einnig af verkum sínum. Hún lék lykilhlutverk sem menntamálaráðherra við að afnema ríkiseinokun við rekstur ljósvakamiðla með nýjum útvarpslögum sem leiddu til stofnunar Stöðvar 2 og Bylgjunnar sem fyrstu frjálsu ljósvakamiðlanna, og sem heilbrigðisráðherra leiddi hún vinnu við ný lög um fæðingarorlof.
Eiginmaður Ragnhildar var Þór Vilhjálmsson, dómari við Hæstarétt, Mannréttindadómstól Evrópu og EFTA-dómstólinn og áður prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Þór og Ragnhildur voru jafnaldrar og gift í 65 ár og unnu saman í pólitísku starfi á yngri árum en Þór var t.d. formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Hann lést í októbermánuði síðastliðnum.
Stefán Friðrik Stefánsson, ritstjóri Íslendings, ritaði ítarlega grein
um feril Ragnhildar árið 2006 á vefritið sus.is, sem hann ritstýrði þá. Ragnhildar var minnst
á þingfundi í dag.