14. janúar 2022

Prófkjör í Múlaþingi 12. mars - framboðsfrestur til 10. febrúar

 

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna ákvað fyrr í vikunni að efna til prófkjörs vegna röðunar á framboðslista Sjálfstæðisfólks fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Múlaþingi. Prófkjörið mun fara fram þann 12. mars n.k. og framboðsfrestur verður til 10. febrúar n.k. Kosið verður um 5 efstu sætin. 

Kjörnefnd hefur tekið til starfa og verður auglýsing send út fljótlega með frekari upplýsingum.